Auglýsing

MySpace

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Flensufćrsla

19. febrúar 2008 klukkan 21:35
Jááá ekki slapp maður í þetta skiptið við þessa flensu, oniiii! Búin að liggja uppí rúmi með hausverk dauðans, hálsbólgu, nefrennsli og almenn leiðindi sem fylgja svona flensum. Það eru óskrifuð lög að maður eigi að láta stjana við sig, horfa á ógeð margar bíómyndir, borða nammi o.s.frv. þegar maður er veikur. EN nei, ég þurfti að læra. Gooood... hélt að þetta væri bara bannað með lögum ég get svo svarið það! Þegar ég taldi mig svo vera búin með þetta verkefni fékk ég mér kvöldmat og sit hér nú með föður mínum að horfa Liverpool-Inter, 84 mín búnar og ennþá 0-0 Óákveðinn Í raun er mér sosem sama hver vinnur.... eeeeeeeen Liverpool var að skora núna, kannski kominn tími til þar sem þeir eru búnir að vera einu manni fleirri 60-70% af leiknum.

Annars fór ég í heimsókn til hennar Katrínar bumubulíus í gær, ef hún er ekki mesta krútt í heimi þá veit ég ekki hvað! Og klárega á hún eftir að verða besta mamma ever !

Svo var kveðjupartý hjá mér síðustu helgi, reyndar ekki fyrir mig.. ekki er ég að fara eitt né neitt, heldur er skyttan okkar hún Sandra að fara aftur til Króatíu. Þetta var mjög gaman, frekar rólegt og bærinn ekkert spes en gaman engu að síður. Svo var ég að sjá á nasa.is að Páll Óskar hinn eini sanni er með ball á Nasa næsta laugardag, hversu mikið langar mig á það ball ómææææ.... þið megið endilega láta skoðanir ykkar í ljós ef þið ætlið að fara!

ooooog Liverpool skoraði sitt annað mark, 2-0! Gerrard að skora sitt 50.mark, strákurinn...

Jæja, ég ætla að fara að horfa á einhverja bíómynd fyrst þessi leikur er að verða búinn



Þetta er það sætasta sem ég hef séð!

Erna is out

Nćturfćrsla

13. febrúar 2008 klukkan 02:53
Klukkan er tuttugumín í þrjú

ég er að læra, á helling eftir... er samt að pæla að fara að sofa og gera þetta á morgun. Ég á samt aldrei eftir að geta vaknað ómæ...

Í þessum töluðu.. skrifuðu orðum er ég að teikna skemmtistaðinn Vegas í þrívídd, er samt Vegas ennþá Vegas? hmmm

Einnig í þessum töluðu orðum á ég í samræðum við vin minn um þynnku. Ég nebbla get ekki sofið út eftir djamm, er vöknuð svona milli 10 og 11... eiginlega hélt ég að það væri nú bannað með lögum. Öll ráð þegin, þetta er nebbla orðið frekar þreytandi... svo vorum við einnig að ræða það af hverju, um leið og maður varð tvítugur og mátti drekka áfengi... af hverju þá þurfti maður að verða þunnur? Ætti það ekki að vera öfugt, maður er undir aldri og það á að refsa manni með þynnku? Nei þetta er pæling..

Svo fór umræðan að snúast um jólabjór, þaðan um bjórbann og úr því í það hversu nett það væri að leika dómara á djamminu! Það væri fyndast í heimi! Sjáið þetta fyrir ykkur

Einn gæji er semí að reyna við eina gellu og hún vill ekkert með hann hafa og gefu það í skyn... ef hann heldur áfram þá labba ég að honum og gef honum gult spjald!

Sami gæji gefst ekki upp og lætur stelpuna ekki vera, þá klárlega fær hann tvær mínútur! Það felst í sér að hann verði að setjast niður og hugsa sinn gang. Ef hann er heiðarlegur leikmaður þá biðst hann afsökunar á atferði sínu.

Svo er hægt að gefa gult spjald og tvær mín fyrir alls konar, t.d. ef einhver er að kyssa einhvern sem er mjög ljótur þá fær hann gult spjald, ef einhver er alls ekki að standa sig í hözzlinu þá fær hann einnig gult spjald.

Spurning samt hvað maður þyrfti að gera til að fá rautt spjald...



Jafnvel skalla einhvern í bringuna?

Jæja farin að sofa!

Adios

12 tíma lćrdómur á sunnudegi..

10. febrúar 2008 klukkan 23:26
Jájá, haldiði að maður hafi ekki bara vaknað 10:30 og byrjað að læra... og það var teiknað og teiknað þangað til fyrir 10 mín, þá sagði ég þetta gott. Ég er að pæla að verðlauna mig og poppa mér popp, horfa á einn þátt í How I met your mother og fara að soooofa.

Annars er maður bara svona helvíti hress, erum að byrja í mega verkefni í skólanum.. býst ekki við að eiga mér líf fyrr en svona í byrjun maí. En það er fínt, þá hefur maður nóg að gera og þá líður tíminn hraðar og þáááá kemur sumarið fyrr! Vá.. ég get ekki beðið eftir sumrinu :)

Við spiluðum við FH í gær. Unnum með 11 mörkum, virkilega skemmtilegt :) Eitt skondið, leikurinn fór fram í Strandgötunni og ég hef ekki spilað þar síðan á Kiwanesmótinu í 6.flokki haha.. einnig áttum við Tinna okkar móment á þessum árum. Þá var einhver leikur hjá mfl.kk niðrí strandgötu og Haukarnir unnu og mikil gleði.. (þetta var á þeim tíma þegar allir litlu krakkarnir hlupu inná völlinn þegar leikurinn var búinn og fengu eiginhandaráritanir) Svo var tekið sjónvarpsviðtal við einhvern leikmann og við ákváðum að vera helnettar og hoppa eins og við ættum lífið að leysa fyrir aftan leikmanninn. Þetta var svo sýnt í Handboltakvöldi sama kvöld og ég gat ekki sofnað fyrir skömm, ætlaði ekki að þora í skólann og svona.. sem betur fer var aðeins einn bekkjarbróðir minn sem sá þetta, gerði grín af mér og svo var það búið. Já.. maður var ungur og vitlaus Hlæjandi

Svo er það staðfest að ég er að fara til Marokkó um páskana, held að það verði bara ævintýri :)

Æjjjjjjjiiii ég er farin að sofa! Góða nótt krakkar

Erna

Hip-Hop!

06. febrúar 2008 klukkan 05:23
Ég er orðin svo mikil Hip-Hop mella síðan að ég flutti hingað...Reyndar soldið áður en ég er gjörsamlega að tapa mér mig langar svo að fara á námskeið! Held ég yrði ógjéð góð...

Kannski svo góð að ég fari í "So you think you can dance?" og taki eitt stykki svona...


Og svona...


Áður en ég veit verð ég komin með dökkann mann uppá arminn og blendingjabeibí...Gavöööð ekkert smá krúttað!

-TheHipHopPrincess-





(Áslaug)

Japanir í fótbolta

05. febrúar 2008 klukkan 15:21


ef þetta er ekki það fyndasta í heimi (ásamt reyndar human tetris) þá veit ég ekki hvað!

Vá hvað ég væri samt til í að stofna lið í human tetris!



Hver er memm?

Annars er maður bara uppí skóla að læra, það stefnir í eitthvað brjálæði næstu 5 vikurnar allavega! hólímólí..

maður má þó ekki gleyma að hafa gaman stundum, t.d. er ég að fara í ísbíltúr í kvöld, það er gaman :)

Síja

Comeback dauđans!

04. febrúar 2008 klukkan 22:53
Jæja elsku vinir! Það hefur ekki komið blogg hérna síðan í fyrra! best að bæta úr því...

Árið 2007 er búið, það var svona semí skemmtilegt... það sem stóð uppúr var

  • að ég komst inn í Listaháskóla Ísland og byrjaði að læra arkitektúr með ógeð skemmtilegu fólki í haust!
  • Áslaug fór til Miami og er livin'it up!
  • upplifði skemmtilegustu verslunarmannahelgi ever á þjóðhátíð
  • átti rosa margar skemmtilegar stundir með full af skemmtilegu fólki
  • djammsumar dauðans
Annað var ekki mjög skemmtilegt og ég vona innilega að þetta ár, 2008 verði besta ár í heimi!







Virkilega skemmtilegir tímar að baki og það verður sko ekki leiðinlegt næsta sumar hjá okkur! ONI! því að þá erum við að fara að djæfa í MIAMI BEIBÍ! Svalur

Held að þetta verði skemmtilegt ár...

  • gæti verið að ég sé að fara til Afríku, Marokkó, göngu um fjöll og gista í tjöldum og hitta frumbyggja og svona um páskana!
  • HSÍ hófið í maí, það er alltaf jafn mikið tilhlökkunarefni
  • Svo hin stórskemmtilegu sumarpartý
  • Miami um miðjan júlí
  • þjóðhátíð um versló
  • æfingaferð til þýskalands í ágúst!
sweeeet!

En ég ætla að reyna að rífa þessa síðu upp, held að það sé málið! Eða...?
Reyndar.. ef enginn er að lesa þetta þá nenni ég því eiginlega ekki... ég verð að fá pepp people!

Adios amigos!

Erna

Halló Hafmarfjörđur!!

21. desember 2007 klukkan 14:58

Þið munið ekki trúa þessu EN....

VIÐ ERUM Á LÍFI!!!!!!!!!!

Og svona heldur betur líka...Þvílíkt happy í lífinu...Happy as a hippoUllandi

Djamm í kvöld...Heldur betur!

Photoshoot framundan...Blogg framundan...

Erna@work says:

en þú mannst eftir klúbbnum okkar, *****klúbbnum

Erna@work says:

hann verður virkur frá 9 í kvöld

Erna@work says:

til svona tjaahh... 6

Áslaug says:

já ég man mjög vel

Áslaug says:

gaman gaman

Erna@work says:

jeeeee

Erna@work says:

ertu ekki í þannig fíling

Erna@work says:

hahah

Erna@work says:

ég er í mega fíling

Erna@work says:

nenni ekki að vinna

Erna@work says:

trallalalaa

Áslaug says:

ég er í svo asnalega miklum fýling erna að þú bara trúir því ekki sko!!

Erna@work says:

ég bara get ekki hætt að brosa ahahhahaha

Áslaug says:

verst að ég hef ekki nennt að vaxa mig...HAHA...það bíður til áramóta

Erna@work says:

hehehheheehhe

Erna@work says:

mmmmmmmmm

Áslaug says:

ég líka ég var bara einhvað hlægjandi áðan af ekkert svo fyndnu...þóttist bara hafa séð fyndið í tölvunni HAHAHHAH

Erna@work says:

HEHEHEHEHE

Áslaug says:

HVERNIG VÆRI AÐ VIRKJA BLOGGIÐ

Áslaug says:

ég skal okokokokokok

Erna@work says:

gooooooood

Erna@work says:

okokokok

Jáááá félagi...It's ON!

Áslaug&Erna

Uss..

30. október 2007 klukkan 11:51
...þetta gengur ekki!

Nú skal ég taka mig á en ég verð að afsaka bloggleysi vegna miikilla anna í skólanum! Það sem drifið hefur á daga mína er það að...

  • kláraði nokkra áfanga í skólanum í síðustu viku = lítill svefn og mikil mygla
  • er í vetrarfríi í viku sem er ÓGEÐSLEGA NÆS
  • byrjaði að æfa fyrir viku og spilaði á móti Gróttu á laugardaginn, rosa gaman... en ekki jafn gaman að tapa :/
  • komst að því að formið fer rosa fljótt hehe
  • harðsperrur hafa einkennt alla síðustu viku, þó aðalega hægra megin í líkamanum sem er frekar fáranlegt.
Nú er ég bara í chillinu, var að vakna fyrir svona klukkutíma og þarf aðeins að fara að stússast. Svo á morgun ætla ég að elda kjúklingasalat fyrir allt liðið (já mamma, vertu nú stolt af stelpunni þinni!) sem við ætlum svo að borða eftir leikinn á móti val á morgun:) Um helgina ætla mamma og pabbi að halda uppá það að þau séu 100 ára samtals, eða bæði fimmtug, það verður eflaust mikið stuð :D

ég hef sosem ekki mikið að segja.. ég kem með myndir frá helginin í næsta bloggi sjúbbídjú! ;)

Erna

Greetings from Miami !

21. október 2007 klukkan 02:06
Er ekki kominn tími á útlandafarinn bloggi! Ég er einmitt í dag búin að vera hérna í heilann mánuð og mér finnst þetta líða ansi hratt...

Ég sakna auðvitað fólksins heima, en ég viðurkenni samt alveg að ég er ekkert að tapa mér skiljiði...En það kemur að því hehe! Planið er að koma heim á klakann 13. desember og ég held að ég fari svo aftur tilbaka 6. janúar!

Það eina sem ég óska mér innilega í jólafríinu er að litla frænka mín verði komin í heiminn. Ég á eftir að grenja í viku ef ég verð farin aftur til Miami þegar hún fæðist í þennan klikkaða heim...

Klikkaður heimur segi ég...Ég var nebbla að fá skilaboð og vinaboð á MySpace...Veit ekki alveg hvað er að frétta af þessum gaur en ég fæ það á tilfinninguna að hann sé karlhóra eða einhvað...Æj þið verðið eiginlega að lesa um hann og sjá "skilmálana"

http://myspace.com/ebg1982

Skilboðin hljómuðu svona: "Hi Sexy! W good mamita i w you need?" 

Hmm mér líst ekki á þetta maður hahah...

Annars er bara yndislegt að frétta af mér...Lífið er að fara vel með mig hérna í Miami...Veðrið hefur verið ágætt en ég vona samt að fá meiri sól á næstunni, hefur verið soldið um rigningar og ský...Skólinn er rosa fínn og ég fýla mig vel...Nóg að gera alltaf og mjög oft þarf maður að vera hugmyndaríkur og svoleiðis skemmtilegt!! 

Það er reyndar eitt mikið áhyggjuefni sem ég hef tjáð Ernu...Málið er að hægri höndin mín verður alltaf brúnni en vinstri! Ég bara skil þetta ekki, hafiði einhverjar skýringar á þessu??? 

Ætla að hætta núna...Vona að Erna taki sig til og haldi áfram að blogga hérna og setja inn myndir...Og ég ætla auðvitað að vera duglegri en það er bara soldil pressa þegar maður er með 2 blogg.

Bestu kveðjur til vina og vandamanna,

Áslaug

Lifi bloggiđ!

15. október 2007 klukkan 21:31
Ég verð víst að standa mig hérna :P

Ég skal reyna að hafa þessa færslu aðeins skemmtilegri en síðustu hehehe :)

Það er sosem ekkert rosalega mikið að frétta, alltaf bara sama.. skólinn, en það er rosa gaman í skólanum og það styttist í haustfríið yndislega :) Eftir haustfríið er bara nóvember eftir og fyrsta vikan í desember og svo blasir jólafríið við og fyrsta önnin í arkitektúr búin ! Glottandi Svo fer ég vonandi að byrja að hlaupa í þessari viku og ég stefni á að spila leikinn á móti Gróttu 27.oktober, hlakka svona freeeeekar mikið til! Hlæjandi það er frekar boring að vera svona súkkulaðikleina endalaust..

Svo er ég nú barasta að pæla í að kaupa mér dollara fyrsta hann er svona lár núna Gráðugur þá get ég keypt mér svo möööööörg föt þegar ég fer til hennar Áslaugar sem er gjörsamlega að fíla sig í botn in MIAMI! Hún er bara djammandi með einhverjum celebum, tanandi eins og hún fái borgað fyrir það og í endalausum bjútítrítmentum... svona á lífið að vera... já og svo náttúrulega er hún í skólanum hehehhehe :)

En er spurning að leggja þessa síðu niður eða..? ég er svo hrikalega léleg í að blogga og áslaug er ofvirk á sinni síðu, tja maður spyr sig! Ég ætla nú samt að fara að kaupa mér myndavél svo ég geti farið að setja einhverjar skemmtó myndir hérna inn :)

Farin að lesa... eða bara útí sjoppu og kaupa popp og horfa á eitthvað af flakkaranum heheh, hmmm...erfitt val


Eeeeeeelska þessa...

Erna


Könnun

Hvernig ţekkiru okkur?